Geimstöð Zodiac-24274: Á sporbaug um Evrópu á meðan Júpíter er afturvirkur

…T e n g i n g u  n á ð…

Eftirfarandi er opinber skýrsla Vetrarbrautarsambandsins hvað varðar áætlaða viðburði geimstöðvarinnar Zodiac á 24274 mánuði um sporbaug. Með notkun háþróaðra auðlinda í taugatengdri tímastjórnunartækni, hefur hinn yfirskilvitlegi stjörnuspámaður spáð fyrir um þær útkomur sem teljast vísindalega líklegastar. Þær eru sem fylgir:

Steingeit (22. desember  – 19. janúar)

Úff steingeitur, það eru tímar þar sem þolinmæðin þrautir vinnur allar, og svo tímar þar sem verður að grípa til aðgerða. Þegar sírenurnar óma í þessum mánuði vegna undirþrýstings þriggja eininga, utanaðkomandi efni greinist í farangursgeymslunni og eldur hefur brotist út í sjöunda fjórðungi, munt þú eiga fullt í fangi. Það er mikilvægt að þú takist á við vandamálin þín af yfirvegun og eitt í einu. Byrjaðu kannski á því að slökkva eldinn.

Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar)

Það getur verið erfitt að greina rót vandans. Þú munt eyða þessum mánuði í að reyna að greina óþekktan sjúkdóm sem heltekur áhöfnina. Sum munu leita til þín með logandi kynfæri, á meðan andlit annarra virðast vera að bráðna af. Veikindin munu dreifast víðar, læknir, og þú neyðist til að ræna eldhúsin því öll þín verkfæri verða eyðilögð. Pizzaskerinn gæti svo sem alveg nýst í skurðaðgerð… er það ekki?

Fiskar (19. febrúar - 20. mars)

Þú hefur alltaf verið í tengslum við þínar eigin tilfinningar sem og tilfinningar annarra. Sem sálfræðingur geimskipsins, verður nóg að gera hjá þér þennan mánuðinn. Af öryggisástæðum verður öll umferð um skipið bönnuð, og þú munt þurfa að takast á við stöðugan straum skjólstæðinga með innilokunarkennd. Það er lykilatriði að hjálpa öðrum að takast á við yfirvofandi sálfræðileg áföll, en passaðu þig á því að gefa ekki of mikið af þér við að reyna að bjarga öllum. Geimstöðin Zodiac þarf á þér að halda líka <3.

Hrútur (21. mars - 19. apríl)

Þegar vandræðin knýja að dyrum í þessum mánuði, verður þú tilbúið/tilbúin/tilbúinn bæði andlega og líkamlega. Ef þrýstingsventill gefur sig, munt þú eiga límband. Ef boltar losna, verður þú tilbúinn að lóða þá fasta. Þú munt koma til með að leysa alls kyns litlar áskoranir, en taktu þér tíma í að leysa stærri vandamál, eins og bilunina í stafni 9. Þá sérstaklega bilunina í stafni 9. Plís lagaðu bilunina í stafni 9.

Naut (20. maí - 20. júní)

Elskan, ég veit, þau skilja þetta bara ekki. Geimurinn á að vera ævintýri; þú átt að geta chillað og siglt í friði. Þó að millistjörnunámustarfsemi fjölskyldu þinnar og auðæfin hennar vegna hafi landað þér herbergi um borð í þessu skipi, virðist allt sem tengist svítunni þinni vera í rugli. Þú verður bara að súpa á hunanginu þínu og horfa á geimstöðina brenna upp í úthvolfinu. *Andvarp* svo bourgeoisie. 

Tvíburar (21. maí - 20. júní)

Óseðjanleg forvitni þín er bæði blessun og bölvun. Tvíburi, ég vara þig við, ekki setja höfuðið á þér í samrunaofninn. Í þessum mánuði mun þig langa til þess að setja hausinn á þér beint inn í ofurhitað plasma. Í guðanna bænum, ekki fokking gera það. Þú munt ekki græða neitt á því. En ég get lesið í stjörnurnar, Tvíburi, og þú munt ekki geta staðist freistinguna. Ég bið Vatnsberana um að gera líkpoka kláran fyrir þig.

Krabbi (21. júní - 22. júlí)

Þú átt það til að treysta of mikið. Varaðu þig á fólki sem reynir að notfæra sér þann eiginleika í þessum mánuði. Djúpgeimssamskiptatækið mun nema skilaboð frá móðursvæðinu. Það verður viðvörun í örfáum orðum: „Jörðin hefur fallið, ekki snúa til baka.“ Þitt innsæi verður að segja til um hvort skilaboðin séu frá Vetrarbrautarviðskiptasambandinu, eða brella af hálfu Uppreisnarflotans í því skyni að plata þig til að halda kyrru fyrir. Treystu eðlisávísun þinni en hafðu augun opin.

Ljón (23. júlí - 22. ágúst)

Í þessum mánuði verður mikilvægt að finna þinn eigin takt, Ljón. Mótlæti birtist í bylgjum alveg eins og afkvæmi búdrottningarinnar. Í þessum mánuði munu þau reyna að yfirtaka gangana þar sem drottningin hefur verpt sínum rotnandi eggjum. Hafðu plasmariffilinn nálægt þér og vertu í hlífðarbúningnum, þú munt ekki fá neina hjálp við að takast á við áskoranirnar sem eru framundan.

Meyja (23. ágúst - 22. september)

Gakktu úr skugga um að þörf þín til að stjórna heltaki ekki allt í kringum þig. Merkúríus verður afturvirkur von bráðar, en þú munt hafa tíma til að uppfæra minnið í stórtölvunni. Það verður erfitt að sleppa tökum á tilfinningalegum og efnislegum tengingum þínum við fyrri líkama. En treystu mér, taugatengingin er uppfærsla. Þú verður einfaldlega að vera opið/opin(n) fyrir breytingum… og því að tilfæra öll skynfæri í gegnum vél. 

Vog (23. september - 22. október)

Komandi mánuður verður þrekraun. Þörf þín fyrir samhverfu og jafnvægi í lífinu mun bregðast auk sýndarþyngdaraflsgjafans. Þér mun mögulega líða eins og líf þitt sé komið úr skorðum, en ekki hafa áhyggjur - það verður nefnilega þannig. Það er mikilvægt að halda ró sinni og átta sig á því að þú getur ekki haft stjórn á öllu.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember)

Þú hefur alltaf getað falið tilfinningar þínar, en í þessum mánuði gæti verið kominn tími til að opna sig. Það mun enginn taka eftir því að þú smitaðist af búeggi drottningarinnar nema þú segir þeim það. Vinnufélagar þínir gætu litið niður á löngun þína til að borða mannakjöt, en það er mikilvægt að þú sért samkvæmt/samkvæm(ur) sjálf(u/m) þér á raunverulegan og óafsakandi hátt. Þú og allir griparmarnir þínir eiga skilið að vera elskaðir. 

Bogamaður (22. nóvember - 21. desember)

Það gæti reynst þér erfitt að höndla sálina þína á næstu dögum. Þér verður sleppt út úr loftlásnum á næstu dögum. Þegar þrýstingurinn dettur niður og hurðirnar lokast, er mikilvægt að þú munir að fylgja flæðinu. Þá sérstaklega loftflæðinu sem mun beina þér burt frá lofttæmi geimsins. Gangi þér vel, Bogamaður.

Vetrarbrautarsambandið vill nýta tækifærið og þakka þér fyrir veitta þjónustu í framtíðinni.

Við metum framlag þitt til framtíðar okkar og framtíð framtíðarinnar.

…T e n g i n g  R o f i n…